Tindur Snær Sigurbjörnsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Tindur Snær Sigurbjörnsson netagerðarmaður fæddist 13. apríl 1997.
Foreldrar hans Sigurbjörn Egilsson sjómaður, smiður, f. 6. júlí 1963, og kona hans Svanfríður Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 16. október 1965.

Börn Svanfríðar og Sigurbjörns:
1. Arna Björg Sigurbjörnsdóttir, f. 5. janúar 1986.
2. María Rós Sigurbjörnsdóttir, f. 17. desember 1993.
3. Tindur Snær Sigurbjörnsson, f. 13. apríl 1997.

Þau Þórey Katla hófu sambúð, hafa eignast tvö börn. Þau búa við Búhamar 9.

I. Sambúðarkona Tinds Snæs er Þórey Katla Brynjarsdóttir úr Þorlákshöfn, húsfreyja, sundlaugarvörður, f. 17. júlí 2000. Foreldrar hennar Brynjar Einir Einarsson, f. 6. febrúar 1975, og Halldóra Björk Guðmundsdóttir, f. 23. apríl 1981.
Börn þeirra:
1. Stormur Héðinn Tindsson, f. 24. apríl 2020.
2. Svanhvít Agla Tindsdóttir, f. 27. júlí 2022.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.