Vigdís Ósk Ómarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Vigdís Ósk Ómarsdóttir húsfreyja, viðskiptafræðingur, starfsmaður Vinnumálastofnunar á Skagaströnd, fæddist 29. ágúst 1971.
Foreldrar hennar Ómar Haraldsson, vélfræðingur, vélstjóri, f. 14. október 1946, og kona hans Ásthildur Gréta Gunnarsdóttir, húsfreyja, f. 15. júní 1946.

Börn Ásthildar og Ómars:
1. Ágúst Óðinn Ómarsson skipstjóri á Drangey SK1, f. 21. september 1969. Maki hans er Sigríður Ólína Ásgeirsdóttir.
2. Vigdís Ósk Ómarsdóttir húsfreyja, viðskiptafræðingur, f. 29. ágúst 1971. Maki hennar er Hjörtur Sævar Guðmundsson.
3. Sigrún Alda Ómarsdóttir húsfreyja, kaupmaður, MA í menningarstjórnun. Hún rekur eigin verslun á Skólavegi 6, f. 12.maí 1976, gift Sveini Ásgeirssyni stýrimanni.
4. Gunnar Tryggvi Ómarsson stýrimaður, vélstjóri, fæddur 27. desember 1978.
5. Ásthildur Tinna Ómarsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 24.maí 1981, býr í Danmörku. Maður hennar er Paw Petersen.

Þau Hjörtur Sævar giftu sig, eignuðust fjögur börn.

I. Maður Vigdísar Óskar er Hjörtur Sævar Guðmundsson sjómaður, f. 8. febrúar 1963. Foreldrar hans Guðmundur Lárusson, f. 5. júní 1929, d. 15. október 2002, og Erla Valdimarsdóttir, f. 8. júní 1934, d. 29. september 2008.
Börn þeirra:
1. Ómar Ísak Hjartarson, f. 13. september 1990.
2. Kristján Ýmir Hjartarson, f. 6. maí 1992.
3. Aron Breki Hjartarson, f. 18. desember 1997.
4. Klara Ósk Hjartardóttir, f. 17. febrúar 2005.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.