Vildís Bergþórsdóttir
Vildís Bergþórsdóttir, húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, býr í Rvk fæddist 29. september 1966 á Fífilgötu 2.
Foreldrar hennar Bergþór Reynir Böðvarsson, f. 15. maí 1934, d. 19. nóvember 2013, og Sigurlaug Vilmundardóttir, f. 1. júní 1935, d. 2. mars 2018.
Börn Sigurlaugar og Reynis:
1. Marta Bergþórsdóttir, f. 1. mars 1956 á Ásum. Maður hennar Ásgeir Sverrisson.
2. Böðvar Vignir Bergþórsson, f. 23. maí 1958 á Ásum. Kona hans Bryndís Guðjónsdóttir.
3. Ólafía Bergþórsdóttir, býr í Reykjavík, f. 19. maí 1961 á Ásum.
4. Vildís Bergþórsdóttir, býr í Reykjavík, f. 29. september 1966 á Fífilgötu 2. Fyrrum maður hennar Birgir Tómas Arnar.
Þau Birgir Tómas giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
I. Fyrrum maður Vildísar er Birgir Tómas Arnar úr Rvk, byggingatæknifræðingur, f. 29. desember 1965. Foreldrar hans Gústaf Oscar Ottósson Arnar, f. 23. desember 1933, d. 30. desember 2015, og Elenora Beatrice McGinley Arnar frá Skotlandi, f. 6. nóvember 1930, d. 24. janúar 2016.
Börn þeirra:
1. Hinrik Birgisson, f. 26. nóvember 2002.
2. Agnes Birgisdóttir, f. 31. júlí 2006.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Vildís.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.