Jónas Rúnar Viðarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. desember 2025 kl. 14:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. desember 2025 kl. 14:34 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jónas Rúnar Viðarsson sjávarútvegsfræðingur, MSc-umhverfis- og auðlindafræðingur fæddist 26. apríl 1971. Hann er starfsmaður Matís, sviðsstjóri á Rannsókna- og nýsköpunarsviði.
Foreldrar hans Viðar Óskarsson rafvirkjameistari, f. 17. mars 1938, og kona hans Sigurbjörg Jónasdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, ræstitæknir, f. 7. febrúar 1942.

Börn Sigurbjargar og Viðars:
1. Jónas Rúnar Viðarsson sjávarútvegsfræðingur, MSc-umhverfis- og auðlindafræðingur, f. 26. apríl 1971. Hann er starfsmaður Matís. Kona hans er Inger Daníelsdóttir.
2. Hafþór Óskar Viðarsson lærður hljóðmaður, vélvirki. Hann vinnur hjá Hval hf. í Hvalfirði, f. 16. maí 1976. Kona hans er Arna Erlingsdóttir.

Þau Inger giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau búa í Mosfellsbæ.

I. Kona Jónasar Rúnars er Inger Jóhanna Daníelsdóttir úr Rvk, húsfreyja, þroskaþjálfi, f. 12. september 1974. Foreldrar hennar Daníel Óskarsson, f. 17. apríl 1948, og Anne Gurine af norsku bergi, f. 2. janúar 1946.
Barn þeirra:
1. Rakel Rós Jónasdóttir, f. 5. febrúar 2009.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.