„Guðbjörg H. Sveinsdóttir“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Guðbjörg H. Sveinsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
| Lína 12: | Lína 12: | ||
Börn þeirra:<br> | Börn þeirra:<br> | ||
1. Tryggvi Stefánsson, f. 10. júlí 1940 í Varmadal, d. 17. janúar 1941.<br> | 1. Tryggvi Stefánsson, f. 10. júlí 1940 í Varmadal, d. 17. janúar 1941.<br> | ||
2. [[Ingunn Stefánsdóttir]] húsfreyja, f. 10. desember 1941. Fyrrum maður hennar Ingvi Jón Einarsson. | 2. [[Ingunn Stefánsdóttir (Varmadal)|Ingunn Stefánsdóttir]] húsfreyja, f. 10. desember 1941. Fyrrum maður hennar Ingvi Jón Einarsson. | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | *Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | ||
Núverandi breyting frá og með 21. september 2025 kl. 11:28
Guðbjörg Halldóra Sveinsdóttir frá Sandvík á Barðsnesi við Norðfjörð, húsfreyja fæddist 5. febrúar 1916 og lést 14. apríl 1992.
Foreldrar hennar voru Sveinn Guðmundsson frá Háu-Kotey í Meðallandi, V.-Skaft., f. 21. september 1883, d. 10. október 1932, og kona hans Oddný Halldórsdóttir frá Sandvíkurseli, f. 5. september 1892 á Þuríðarstöðum í Eiðaþinghá, d. 15. febrúar 1976.
Guðbjörg var með foreldrum sínum.
Hún var vetrarstúlka á Akureyri 1930, vann við fiskiðnað, var matráðskona, starfaði síðar í Innri-Njarðvík. Síðar vann hún hjá Granda í Reykjavík.
Hún flutti til Eyja, var í Varmadal með Stefáni og barninu Tryggva 1940, ein með barninu Ingunni þar 1944.
Guðbjörg veiktist og varð að dvelja á sjúkrastofnunum í hartnær þrjá áratugi.
Eftir að bata fór að gæta bjó hún í sambýli á Laugarási í Reykjavík og síðar í íbúð á vegum Öryrkjabandalagsins í Kópavogi og gat unnið.
Guðbjörg Halldóra lést 1992 og var jörðuð við hlið Tryggva sonar síns í Eyjum.
I. Sambúðarmaður Guðbjargar var Stefán Nikulásson, sjómaður, stýrimaður, skipstjóri, þingvörður, f. 6. júlí 1913, d. 7. ágúst 2001.
Börn þeirra:
1. Tryggvi Stefánsson, f. 10. júlí 1940 í Varmadal, d. 17. janúar 1941.
2. Ingunn Stefánsdóttir húsfreyja, f. 10. desember 1941. Fyrrum maður hennar Ingvi Jón Einarsson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Morgunblaðið. Minning.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.