„Christiane Dorothea Thomsen“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Christiane Dorothea Thomsen''', fædd Knudsen, húsfreyja í Godthaab, síðar í Danmörku, fæddist 9. október 1814 í Reykjavík og lést 31. júlí 1859 í...) |
m (Verndaði „Christiane Dorothea Thomsen“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 29. desember 2015 kl. 21:22
Christiane Dorothea Thomsen, fædd Knudsen, húsfreyja í Godthaab, síðar í Danmörku, fæddist 9. október 1814 í Reykjavík og lést 31. júlí 1859 í Kaupmannahöfn.
Foreldrar hennar voru Lauritz Michael Knudsen kaupmaður í Reykjavík og kona hans Margrete Andrea Hölter Knudsen húsfreyja, f. 4. janúar 1781, d. 3. maí 1849.
Hún var hjá foreldrum sínum í Knudsenshúsi í Reykjavík 1816, fluttist til Eyja frá Reykjavík 1832, átján ára ,,til að giftast“ og giftist Hans Edvard á árinu.
Þau eignuðust barnið Aurora Engeline 1833 og fluttust til Reykjavíkur á því ári.
Hjónin voru í Brekkmannshúsi í Reykjavík 1833-1834, í Knudtzonshúsi í Reykjavík 1835.
Þau fluttust til Þingeyrar þar sem Hans Edvard var verslunarstjóri hjá P.C. Knudtzon 1836-1840.
Christiane var með 3 börnum sínum hjá Ane systur sinni á Vatneyri í Patreksfirði 1840.
Þau fluttust til Kaupmannahafnar 1840 og bjuggu þar síðan, eignuðust saman 8 börn.
Christiane Dorothea var stúlkan, sem Jónas Hallgrímsson leit í Reykjavík og hreifst mjög af. Eftir að hún hafnaði honum, orti hann kvæðið Söknuð:
- Man ég þig, mey,
- er hin mæra sól
- hátt í heiði blikar;
- Man ég þig, er máni
- að mararskauti
- sígur silfurblár.
- Heyri ég himinblæ
- heiti þitt
- anda ástarrómi;
- fjallbuna þylur
- hið fagra nafn
- glöð í grænum rinda.
- Lít ég það margt
- er þér líkjast vill
- guðs í góðum heimi:
- brosi dagroða,
- blástjörnur augum,
- liljur ljósri hendi.
Maður Christiane Dorotheu, (29. október 1832), var Hans Edvard Thomsen verslunarstjóri, síðar kaupmaður í Godthaab, f. 3. júlí 1807, d. 27. apríl 1881.
Börn þeirra:
1. Aurora Engeline Thomsen, f. 7. mars 1833. Hún var í Knudtzonshúsi með foreldrum sínum 1835, með móður sinni og systkinum á Vatneyri 1840 og fluttist með foreldrum sínum til Danmerkur. Maður hennar var Carl Möller.
2. Nicoline Henriette Christiane Thomsen, f. 30. ágúst 1835. Hún var með móður sinni og systkinum á Vatneyri 1840 og fluttist með foreldrum sínum til Danmerkur. Maður hennar var Thomas Thomsen. Þau munu hafa búið í Noregi og síðar í Ameríku, ókunn að öðru leyti.
3. Hans Thomsen, f. 1. apríl 1837, d. 13. maí 1837.
4. Juliana Thomsen (Julie Thomsen) húsfreyja í Tönder og Vordingborg, skírð 3. nóvember 1838, d. 1868. Hún var með móður sinni og systkinum á Vatneyri 1840. Maður hennar var Peter Martin Petræus læknir, f. 10. október 1838, d. 16. janúar 1900.
5. Hans Edvard Thomsen, f. 24. september 1842. Hann var verslunarstjóri við Knudtzonsverslun á Þingeyri 1862-1864, fluttist til Kaupmannahafnar 1867 og gerðist bakarameistari. Kona hans var Ragnheiður Metta Pétursdóttir húsfreyja, f. 27. nóvember 1842 á Búðum á Snæfellsnesi, d. 13. mars 1885.
6. Nicolaj Heinrich Thomsen verslunarstjóri, síðan kaupmaður í
Godthaabverzlun, f. 9. desember 1844 í Kaupmannahöfn, d. 23. apríl 1923 þar.
7. Alvilda Thomsen, f. 24. júní 1847 í Kaupmannahöfn, dó ung.
8. Julius Thomsen, f. 21. júní 1852 í Kaupmannahöfn, d. í Chicago í Bandaríkjunum. Kona hans var Eliza Mary Lily Bertelsen, f. 19. desember 1845, d. 1. janúar 1938 í Kaupmannahöfn.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Knudsensætt 1-2. Ritstjóri Þorsteinn Jónsson. Sögusteinn 1986.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.