Baldur Pálsson
Baldur Pálsson húsasmiður, rekur fyrirtækið Eskihús, fæddist 22. ágúst 1968.
Foreldrar hans Páll Bergsson sjómaður stýrimaður, verslunarmaður, vörubifreiðastjóri, f. 30. september 1932, d. 14. apríl 2024, og kona hans Þorgerður Dagbjartsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 28. október 1931, d. 28. júlí 2022.
Börn Þorgerðar og Páls:
1. Drengur, f. 1963, d. 1963.
2. Dagrún Pálsdóttir, f. 31. desember 1964. Maður hennar Kristján Karl Heiðberg.
3. Bergur Pálsson, f. 31. desember 1964. Kona hans Sigrún Þorkelsdóttir.
4. Baldur Pálsson, f. 22. ágúst 1968. Barnsmóðir hans Jóhanna Sigríður Esjarsdóttir. Kona hans Svava Steingrímsdóttir.
Baldur eignaðist barn með Jóhönnu Sigríði 1996.
Þau Svava giftu sig, eignuðust tvö börn og Baldur eignaðist eitt barn áður. Þau búa á Selfossi.
I. Barnsmóðir Baldurs er Jóhanna Sigríður Esjarsdóttir, f. 3. september 1970.
Barn þeirra:
1. Hafsteinn Esjar Baldursson, f. 25. júlí 1996.
II. Kona Baldurs er Svava Steingrímsdóttir iðnfræðingur, vinnur hjá verkfræðistofunni Eflu, f. 16. september 1971. Foreldrar hennar Steingrímur Hólmgeir Ingvarsson, f. 13. nóvember 1939, d. 15. nóvember 2023, og Jóhanna María Þórðardóttir, f. 8. nóvember 1941.
Börn þeirra:
2. Eva María Baldursdóttir, f. 21. september 2003.
3. Eiður Þór Baldursson, f. 9. ágúst 2010.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Baldur.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2025.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.