Elísabet Guðfinna Eiríksdóttir
Elísabet Guðfinna Eiríksdóttir húsfreyja, dagmóðir í Mosfellsbæ fæddist 8. febrúar 1955.
Foreldrar hennar voru Eiríkur Sigurðsson frá Hruna, sjómaður, útgerðarmaður, verkamaður, bifreiðastjóri, f. þar 31. janúar 1931, d. 28. nóvember 2007, og kona hans Sigríður Sæunn Sigurðardóttir frá Ísafirði, húsfreyja, leikskólastarfsmaður, f. þar 20. febrúar 1933.
Börn Sigríðar og Eiríks:
1. Gísli Sigurður Eiríksson vélstjóri, kennari við Framhaldsskólann í Eyjum, f. 13. apríl 1951. Kona hans er Sigþóra Jónatansdóttir.
2. Margrét Vigdís Eiríksdóttir húsfreyja, félagsliði við heimahjúkrun, f. 4. desember 1952. Maður hennar er Sigurður Örn Karlsson.
3. Elísabet Guðfinna Eiríksdóttir húsfreyja, dagmóðir í Mosfellsbæ, f. 8. febrúar 1955. Maður hennar er Björn Heimir Sigurbjörnsson.
4. Sólveig Bryndís Eiríksdóttir húsfreyja, starfskona á sambýli fatlaðra, f. 16. júlí 1959.
5. Þröstur Gunnar Eiríksson sjómaður, iðnverkamaður á Selfossi, f. 4. ágúst 1966. Fyrri kona hans var Svanhildur Svansdóttir. Síðari kona hans er Svetlans Balinskaya.
Þau Björn Heimir giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Eyjum, en nú í Mosfellsbæ.
I. Maður Elísabetar Guðfinnu er Björn Heimir Sigurbjörnsson rak Eyjakjör í Eyjum, f. 24. ágúst 1953. Kjörforeldrar hans Sigurbjörn Ágúst Einarsson, f. 17. ágúst 1909, d. 23. maí 1992, og Helga Halldórsdóttir, f. 23. október 1907, d. 19. júlí 1980.
Börn þeirra:
1. Albert Sigurður Heimisson bifreiðastjóri hjá Eykt, f. 15. mars 1974.
2. Helga Björk Heimisdóttir húsfreyja, rekur HR þrif með manni sínum, f. 19. nóvember 1977.
3. Telma Hrund Heimisdóttir húsfreyja, stuðningsfulltrúi, f. 8. nóvember 1991.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Elísabet.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.