Guðný Bóel Guðbjartsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. nóvember 2025 kl. 16:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. nóvember 2025 kl. 16:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðný Bóel Guðbjartsdóttir, húsfreyja, matvælatæknir á Selfossi fæddist 10. júní 1956 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Guðbjartur Gestur Andrésson, kennari, húasmíðameistari, f. 22. janúar 1922 á Hamri í Múlahreppi, Barð., d. 8. desember 2010, og kona hans Estar Anna Aradóttir frá Akurey, verkakona, húsfreyja, f. 3. mars 1927, d. 2. september 2020.

Þau Grétar giftu sig 1976, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Hábæ.
Grétar fórst 1987.
Þau Jóhannes giftu sig í Ástralíu, eiga ekki börn saman. Þau búa á Selfossi.

I. Maður Guðnýjar Bóelar, (6. júní 1976), var Grétar Halldórsson frá Kalmanstjörn, sjómaður, vélstjóri, f. 8. desember 1952, d. 19. september 1987.
Börn þeirra:
1. Guðbjartur Grétar Grétarsson bifreiðastjóri langferðabíla, f. 9. október 1973.
2. Sigrún Harpa Grétarsdóttir bifreiðastjóri langferðabíla, f. 5. mars 1975.

II. Maður Guðnýjar Bóelar er Jóhannes Lúðvíksson, f. 16. desember 1956.


Heimildir

  • Heimaslóð.
  • Íslendingabók.
  • Valdaætt. Niðjatal Valda Ketilssonar bónda á Sauðhúsvöllum undir Eyjafjöllum og k.h. Katrínar Þórðardóttur. Magnea Árnadóttir. Handrit 1992.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.