Guðrún Ísleifsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. janúar 2026 kl. 14:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. janúar 2026 kl. 14:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðrún Ísleifsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Ísleifsdóttir húsfreyja fæddist 16. desember 1904 í Neðri-Dal u. Eyjafjöllum og lést 18. janúar 1999.
Foreldrar hennar voru Ísleifur Bergsteinsson, f. 27. júní 1869, d. 16. mars 1941, Guðný Sigurðardóttir, f. 15. febrúar 1866, d. 6. september 1948. Börn Guðnýjar og Ísleifs:
1. Katrín Ísleifsdóttir húsfreyja á Einlandi í Grindavík 1930, f. 17. febrúar 1894, d. 9. mars 1972.
2. Bergsveinn Ísleifsson bóndi í Götu í Árn., Móum í Innri-Njarðvík, f. 16. júní 1895, d. 20. mars 1951.
3. Guðmundur Ísleifsson trésmiður í Eyjum, bóndi í Krýsuvík, trésmiður í Reykjavík, f. 18. september 1896, d. 11. janúar 1962.
4. Sigurleif Ísleifsdóttir, f. 8. apríl 1898, d. 8. apríl 1898.
5. Sigurður Ísleifsson skipstjóri í Hafnarfirði, f. 6. ágúst 1899, d. 15. nóvember 1964.
6. Markús Ísleifsson fósturbarn Vigfúsar föðurbróður síns, trésmiður í Reykjavík, f. 4. febrúar 1901, d. 13. desember 1984.
7. Anna Ísleifsdóttir húsfreyja, f. 10. mars 1902, d. 17. september 1940.
8. Þorsteinn Ísleifsson sjómaður í Reykjavík, f. 8. desember 1903, d. 28. janúar 1936.
9. Guðrún Ísleifsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 17. desember 1904, d. 18. janúar 1999.
10. Guðleifur Ísleifsson vélamaður, skipstjóri, vitavörður á Sauðanesi við Siglufjörð, f. 10. október 1906, d. 20. mars 1967.
11. Aðalheiður Ísleifsdóttir, f. 4. ágúst 1910, d. 31. janúar 1930.
12. Aðalheiður Ísleifs Hafliðadóttir dóttir Önnu Ísleifsdóttur og fósturdóttir Guðnýjar og Ísleifs. Aðalheiður var f. 28. janúar 1929 á Brekastíg 24 í Eyjum, síðast í Bólstaðarhlíð 46 í Reykjavík, d. 24. september 2018.

Þau Bergsteinn giftu sig 1928, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Rvk. Þau skildu.
Þau Benedikt hófu sambúð, eignuðust ekki börn saman.

I. Fyrrum maður Guðrúnar var Bergsteinn Hjörleifsson frá Eyrarbakka, bóndi, ferjumaður, verkamaður, múrari, f. 1. apríl 1902, d. 25. febrúar 1987. Foreldrar hans Hjörleifur Hjörleifsson, f. 26. nóvember 1866, d. 17. nóvember 1940, og Margrét Eyjólfsdóttir, f. 12. september 1867, d. 23. nóvember 1918.
Börn þeirra:
1. Hjörleifur Bergsteinsson, f. 16. júní 1928.
2. Aðalheiður Bergsteinsdóttir, f. 31. ágúst 1929.
3. Guðný Margrét Bergsteinsdóttir, f. 22. október 1932.
4. Ísleifur Marz Bergsteinsson, f. 4. nóvember 1933.

II. Sambúðarmaður Guðrúnar var Benedikt Jóhannesson húsgagnasmiður, f. 3. apríl 1904, d. 1. mars 1990. Foreldrar hans Guðríður Jóhannesdóttir, f. 25. maí 1859, d. 31. júlí 1948, og Jóhannes Þorleifsson, f. 29. október 1842, d. 2. september 1915.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.