Ástríður Jónsdóttir (Ofanleiti)

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search

Ástríður Jónsdóttir frá Ofanleiti, húsfreyja í Þormóðsdal fæddist 7. maí 1803 og lést 16. ágúst 1824.
Foreldrar hennar voru Jón Arason, síðar sóknarprestur á Ofanleiti, f. um 1777, d. 10. september 1810, og kona hans Þorbjörg Pétursdóttir frá Gjábakka, húsfreyja, f. 1778, d. 6. júní 1819.

Ástríður var 19 ára gift kona í Þormóðsdal 1822 með Jóni Magnússyni bónda. Hún lést 1824.

Maður hennar, (25. júlí 1822), var Jón Magnússon bóndi í Þormóðsdal í Mosfellssókn. Hún var fyrri kona hans.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1956.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.