Bragi Júlíusson (verkstjóri)

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search
Bragi Júlíusson.

Bragi Júlíusson úr Þykkvabæ, Rang., vélstjóri, vélvirki, verkstjóri fæddist 11. september 1953 í Norður-Nýjabæ þar og lést 20. júní 2021 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Júlíus Fjeldsteð Óskarsson bóndi, síðar umsjónarmaður í Keflavík, f. 13. apríl 1914 á Hellissandi, Snæf., d. 30. september 1992, og kona hans Guðmunda Erlendsdóttir húsfreyja, f. 27. október 1920 á Ísafirði, d. 15. maí 1984.

Börn Guðmundu og Júlíusar í Eyjum:
1. Lilja Júlíusdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 25. desember 1951, d. 10. maí 2011.
2. Bragi Júlíusson vélstjóri, vélvirki, verkstjóri, f. 11. september 1953, d. 20. júní 2021.

Bragi var með foreldrum sínum í æsku og vann við bú foreldra sinna.
Hann nam við Vélskólann í Eyjum, lauk náminu í Reykjavík 1973, einnig lærði hann vélvirkjun í Eyjum og lauk því námi 1985.
Bragi var vélstjóri á ýmsum bátum frá Eyjum uns hann hóf nám í vélvirkjun.
þau Sigþóra ráku Skipaafgreiðsluna í Vestmannaeyjum, ásamt þrem öðrum. Það fyrirtæki seldu þau Eimskipafélaginu.
Síðan var hann verkstjóri hjá Eimskip og Ísfélagi Vestmannaeyja (F.E.S.) fram að veikindum sínum.
Þau Sigþóra giftu sig 1974, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Heiðarvegi 9a, en síðar á Búastaðabraut 16.
Bragi lést 2021.

I. Kona Braga, (25. maí 1974), er Sigþóra Björgvinsdóttir frá Úthlíð, húsfreyja, f. 17. janúar 1954.
Börn þeirra:
1. Björg Ólöf Bragadóttir húsfreyja, þroskaþjálfi í Eyjum, f. 4. febrúar 1973. Maður hennar Valgeir Sigurjónsson frá Patreksfirði, látinn.
2. Gylfi Bragason rafvirki, f. 11. september 1980. Kona hans Edda Svandís Einarsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.