Dagmar Þorkelsdóttir

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search

Dagmar Þorkelsdóttir húsfreyja á Seyðisfirði, síðast í Hafnarfirði fæddist 25. september 1897 í Reykjavík og lést 22. febrúar 1983.
Foreldrar hennar voru Þorkell Eiríksson sjómaður á Gjábakka eystri 1910, f. 16. febrúar 1853 í Reykjavík, d. 18. apríl 1920 og kona hans Sigurveig Samsonardóttir húsfreyja, f. 26. mars 1854 í Svalbarðssókn í N-Þing., d. 7. ágúst 1930.

Börn Sigurveigar og Þorkels,-í Eyjum:
1. Kristmann Agnar Þorkelsson yfirfiskimatsmaður, f. 23. júlí 1883, d. 22. janúar 1972.
2. Friðbjörn Þorkelsson sjómaður, f. 25. ágúst 1885 á Seyðisfirði, d. 4. maí 1957.
3. Eirikka Guðrún Þorkelsdóttir húsfreyja á Eskifirði, f. 14. júlí 1888 í Reykjavík, d. 3. desember 1970.
4. Aðalbjörg Jónína Dóróthea Þorkelsdóttir húsfreyja, f. 5. janúar 1892 í Reykjavík, d. 5. nóvember 1965.
5. Dagmar Þorkelsdóttir húsfreyja, síðast í Hafnarfirði, f. 25. september 1897 í Reykjavík, d. 22. febrúar 1983.

Dagmar fluttist með foreldrum sínum að Péturshúsi , (síðar Stafholt), 1905, var með þeim á Gjábakka 1910, fluttist til Seyðisfjarðar 1916, giftist Einari 1917, var húsfreyja á Kirkjuhvoli á Seyðisfirði 1920 með Einari Guðmundssyni og barninu Oddnýju Aðalbjörgu, f. 31. janúar 1918.
Hún fluttist til Eyja með Oddnýju Aðalbjörgu 1926, var í Hafnarfirði 1930.
Hún dvaldi síðast á Sólvangi í Hafnarfirði.

I. Fyrri maður hennar, (19. maí 1917), var Einar Guðmundsson, þá útgerðarmaður, bóndi á Vestdalseyri í Seyðisfirði, f. 1. nóvember 1887, d. 31. júlí 1929. Hann var sonur Guðmundar Einarssonar frá Miðhúsum og Oddnýjar Ólafsdóttur.
Barn þeirra hér:
1. Oddný Aðalbjörg Einarsdóttir Delaney búsett í Bandaríkjunum, f. 31. janúar 1918, d. í nóvember 2006.

II. Síðari maður hennar, (6. nóvember 1937), var Steingrímur Pétur Sigfússon sjómaður í Hafnarfirði, f. 6. nóvember 1898 á Teigi í Fljótshlíð, d. 9. júlí 1975. Foreldrar hans voru Sigfús Þórðarson sjómaður í Hafnarfirði, f. 30. október 1877 á Grjótá í Fljótshlíð, d. 15. maí 1935 í Hafnarfirði, og kona hans Þórhildur Magnúsdóttir, húsfreyja, f. 24. júní 1870 á Dagverðarnesi á Rangárvöllum, d. 17. nóvember 1945 á Vífilsstöðum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.