Ester Torfadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ester Torfadóttir húsfreyja, heilbrigðisgagnafræðingur fæddist 11. júní 1979.
Foreldrar hennar Torfi Haraldsson vigtarmaður, ættfræðingur, f. 5. apríl 1950, og kona hans Binna Hlöðversdóttir húsfreyja, þroskaþjálfi, f. 29. október 1946, d. 17. febrúar 2021.

Börn Binnu og Torfa:
1. Ívar Torfason, skipstjóri á Herjólfi, sjómaður, f. 26. nóvember 1977. Kona hans Sirrý Björt Lúðvíksdóttir.
2. Ester Torfadóttir heilbrigðisgagnafræðingur, f. 11. júní 1979. Maður hennar Jónas Logi Ómarsson.

Þau Jónas Logi giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Smáragötu 20.

I. Maður Esterar er Jónas Logi Ómarsson matreiðslumeistari, matsveinn á Heimaey VE, f. 17. nóvember 1975.
Börn þeirra:
1. Magdalena Jónasdóttir, f. 13. mars 2008.
2. Maríanna Jónasdóttir, f. 1. september 2009.
3. Viktoría Jónasdóttir, f. 15. maí 2014.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.