Guðný Kristín Jóhannsdóttir

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search

Guðný Kristín Jóhannsdóttir, frá Reykjadal, sjúkraliði fæddist 7. júní 1953.
Foreldrar hennar voru Jóhann Ármann Kristjánsson frá Reykjadal, sjómaður, vélstjóri, matsveinn, mælaálestrarmaður, f. 29. desember 1915 í Skipholti, d. 6. desember 2002, og kona hans Elín Guðlaugsdóttir frá Sólbergi við Brekastíg 3, húsfreyja, f. 21. apríl 1930, d. 5. júlí 2022.

Börn Elínar og Jóhanns Ármanns:
1. Guðlaugur Jóhannsson netagerðarmaður, sjómaður, f. 29. apríl 1948 á Sólbergi. Kona hans Margrét Jenný Gunnarsdóttir.
2. Ragna Jóhannsdóttir húsfreyja, starfsmaður á elliheimili í Danmörku, f. 6. nóvember 1949 í Baðhúsinu. Maður hennar Jörn Boklund.
3. Guðný Kristín Jóhannsdóttir sjúkraliði í Eyjum, f. 7. júní 1953 í Reykjadal, ógift.
4. Jóhann Ellert Jóhannsson viðskiptafræðingur, fjármálastjóri í Noregi, f. 8. október 1956 á Bessastíg 10. Kona hans Solveig Krusholm.

Guðný er ógift og barnlaus. Hún býr við Áshamar 67.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.