Ragna Jóhannsdóttir (Reykjadal)
Ragna Jóhannsdóttir frá Reykjadal, húsfreyja, starfsmaður á elliheimili í Danmörku, ræstitæknir, fæddist 6. nóvember 1949.
Foreldrar hennar voru Jóhann Ármann Kristjánsson frá Reykjadal, sjómaður, vélstjóri, matsveinn, mælaálestrarmaður, f. 29. desember 1915 í Skipholti, d. 6. desember 2002, og kona hans Elín Guðlaugsdóttir frá Sólbergi við Brekastíg 3, húsfreyja, f. 21. apríl 1930, d. 5. júlí 2022.
Börn Elínar og Jóhanns Ármanns:
1. Guðlaugur Jóhannsson netagerðarmaður, sjómaður, f. 29. apríl 1948 á Sólbergi. Kona hans Margrét Jenný Gunnarsdóttir.
2. Ragna Jóhannsdóttir húsfreyja, starfsmaður á elliheimili í Danmörku, f. 6. nóvember 1949 í Baðhúsinu. Maður hennar Jörn Boklund.
3. Guðný Kristín Jóhannsdóttir sjúkraliði í Eyjum, f. 7. júní 1953 í Reykjadal, ógift.
4. Jóhann Ellert Jóhannsson viðskiptafræðingur, fjármálastjóri í Noregi, f. 8. október 1956 á Bessastíg 10. Kona hans Solveig Krusholm.
Þau Jörn giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa á Amager.
I. Maður Rögnu er Jörn Boklund, smiður, arkitekt, f. 8. október 1946.
Börn þeirra:
1. Erik Jóhann Boklund, f. 6. október 1969.
2. Anetta Ella Boklund, f. 15. júní 1971.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Guðný Kristín.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.