Haukur Kristjánsson (bifreiðastjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Haukur Kristjánsson sjómaður, vélstjóri, bifreiðastjóri hjá Esso fæddist 2. apríl 1930 á Vestmannabraut 72.
Foreldrar hans voru Kristján Einarsson skipstjóri, f. 15. febrúar 1906 í Þjóðólfshaga í Holtum, d. 9. mars 1997, og kona hans Margrét Jónsdóttir frá Steig í Mýrdal, húsfreyja, f. 18. febrúar 1908, d. 9. mars 1997.

Börn Margrétar og Kristjáns:
1. Haukur Kristjánsson sjómaður, vélstjóri, bifreiðastjóri hjá Esso, f. 2. apríl 1930 á Vestmannabraut 72, d. 16. október 2015. Kona hans Ester Friðjónsdóttir, látin.
2. Jóna Sigríður Kristjánsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 7. október 1931 á Heiðarbóli, d. 11. apríl 2019. Maður hennar Kári Birgir Sigurðsson.
3. Garðar Hafsteinn Kristjánsson, f. 18. október 1934 í Ási, d. 22. ágúst 1935.
4. Guðbjörg Kristjánsdóttir röntgenmyndari, f. 23. janúar 1936 í Ási, d. 15. janúar 2013. Maður hennar Jóhann Ingvar Guðmundsson.
5. Edda Kristjánsdóttir verslunarmaður, f. 13. febrúar 1939 í Sóleyjartungu. Barnsfaðir Reynir Oddsson. Fyrrum sambýlismaður Herbert Árnason.
6. Ester Kristjánsdóttir húsfreyja, starfsmaður Sjúkrahússins, f. 3. maí 1944 í Sóleyjartungu. Maður hennar Sigurður Guðmundsson.

Þau Ester giftu sig, eignuðust tvö börn og kjörbarn.
Ester lést 2005.
Þau bjuggu í Eyjum.

I. Kona Hauks var Ester Friðjónsdóttir, f. 17. ágúst 1932, d. 4. ágúst 2005. Foreldrar hennar Friðjón Guðmundsson, f. 7. apríl 1909, d. 10. janúar 1981, og Guðný Borgþóra Guðmundsdóttir, f. 27. febrúar 1909, d. 2. maí 1978.
Börn þeirra:
1. Birkir Hauksson, f. 25. nóvember 1962. Hann var kjörbarn. Faðir hans var Herbert Árnason, f. 6. apríl 1939. Móðir hans Edda Kristjánsdóttir, f. 13. febrúar 1939, systir Hauks.
2. Friðborg Hauksdóttir, f. 6. september 1968.
3. Karen Hauksdóttir Esterardóttir, f. 4. febrúar 1973.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.