Helga Jóhannesdóttir Carrougher

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Helga Jóhannesdóttir Carrougher sjómaður, fiskverkakona á Stöðvarfirði fæddist 14. desember 1950 á Vesturhúsum.
Foreldrar hennar Jóhannes Pétur Sigmarsson, f. 9. september 1929, d. 18. desember 2008, og Jóhanna Þorsteinsdóttir, f. 25. mars 1930, d. 21. nóvember 2000.

Börn Jóhönnu og Jóhannesar:
1. Helga Jóhannesdóttir Carrougher sjókona á Stöðvarfirði, f. 14. desember 1950 á Vesturhúsum. Fyrrum maður hennar Guðjón Sigurðsson. Maður hennar Glenn Carrougher.
2. Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir atvinnurekandi í Mosfellsbæ, f. 6. desember 1953 á Kirkjubæjarbraut 4.
3. Sigmar Jóhannesson rafeindavirki á Akranesi, f. 5. júlí 1956 á Kirkjubæjarbraut 4. Kona hans Lára Dóra Oddsdóttir.

Þau Guðjón giftu sig, eignuðust ekki börn saman. Þau skildu.
Þau Glenn giftu sig, eignuðust ekki börn. Þau bjuggu í Bandaríkjunum.

I. Fyrrum maður Helgu er Guðjón Sigurðsson þjálfari, f. 1954.

II. Maður Helgu var Glenn Carrougher, sjómaður, f. 1956, látinn.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.