Kristrún Runólfsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristrún Runólfsdóttir húsfreyja, hársnyrtimeistari fæddist 8. janúar 1961.
Foreldrar hennar Runólfur Runólfsson frá Bræðratungu, verkstjóri, f. 4. ágúst 1938, og kona hans Kristín Sigurðardóttir frá Þingeyri, húsfreyja, verslunarmaður, f. 8. mars 1937.

Barn Kristínar og Sveins Ásgeirs Sigurðssonar:
1. Jóhanna Sigríður Sveinsdóttir húsfreyja, rak gistiheimili á Hvammstanga, býr síðan í Njarðvíkum, f. 3. febrúar 1956 á Boðaslóð 15. Fyrrum maður hennar Ólafur Þorkell Pálsson. Maður hennar Ólafur Helgi Guðmundsson.
Börn Kristínar og Runólfs:
2. Unnur Runólfsdóttir húsfreyja, afgreiðslukona, f. 1. desember 1957. Maður hennar Jóhannes Skarphéðinsson.
3. Guðrún Runólfsdóttir húsfreyja, bóndi á Barkarstöðum í Fljótshlíð, síðar starfsmaður í mötuneyti á Selfossi, f. 7. desember 1959. Maður hennar Daði Sigurðsson.
4. Kristrún Runólfsdóttir hársnyrtimeistari í Hafnarfirði, f. 8. janúar 1961. Maður hennar Guðmundur Leifsson.
5. Þórhildur Runólfsdóttir, f. 21. ágúst 1970, d. 29. maí 1981.

Þau Guðmundur giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Hfirði.

I. Maður Kristrúnar er Guðmundur Leifsson frá Hfirði, húsasmíðameistari, f. 4. október 1960. Foreldrar hans Leifur Kristleifsson, og Sigríður Sveinlaug Guðmundsdóttir.
Börn þeirra:
1. Arnar Þór Guðmundsson, f. 23. apríl 1987.
2. Orri Freyr Guðmundsson, f. 28. júlí 1992.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.