Magnús Helgi Sigurðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Helgi Sigurðsson bifvélavirki, vélsmíðameistari á Seyðisfirði fæddist 29. júní 1947.
Foreldrar hans voru Sigurður Magnússon verkamaður, verkstjóri, kennari, f. 13. apríl 1909 í Svartahúsi í Seyðisfirði eystri, d. 24. nóvember 2004, og kona hans Guðrún Jóhanna Magnúsdóttir frá Másseli í Jökulsárhlíð í N.-Múl., húsfreyja, f. 1. mars 1917, d. 16. október 2002.

Börn Jóhönnu og Sigurðar:
1. Þórunn Sigurðardóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur í Garðabæ, f. 22. janúar 1938. Maður hennar Finnur Jónsson, látinn.
2. Magnús Helgi Sigurðsson bifvélavirki, vélsmíðameistari á Seyðisfirði, f. 29. júní 1947. Fyrrum kona hans Sigríður Stefánsdóttir.
3. Ásdís Sigurðardóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Reykjavík, f. 27. janúar 1950. Fyrrum maður hennar Sveinn Valgeirsson. Maður hennar Guðjón Einar Guðvarðarson, látinn.
4. Ólafur Már Sigurðsson kaupmaður, bæjarfulltrúi, verslunarstjóri, markaðs- og sölustjóri, deildarstjóri, f. 29. nóvember 1953. Fyrrum kona hans María Ólafsdóttir. Fyrrum kona hans Sigrún Kristín Ægisdóttir.

Þau Sigríður giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Magnús Helgi býr á Seyðisfirði.

I. Fyrrum kona Magnúsar Helga er Sigríður Stefánsdóttir, f. 30. júní 1943. Foreldrar hennar Stefán Þorvarðsson, f. 15. júní 1911, d. 3. apríl 1991, og Ragna Skúladóttir, f. 23. október 1914, d. 19. ágúst 1999.
Börn þeirra:
1. Stefán Ragnar Magnússon, f. 3. desember 1971.
2. Jóhanna Magnúsdóttir, f. 23. febrúar 1976.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.