Marta Sigurðardóttir (Nýjabæ)
Marta Sigríður Sigurðardóttir frá Nýjabæ, húsfreyja, bókari fæddist 22. janúar 1927 og lést 8. janúar 2025.
Foreldrar hennar voru Sigurður Jón Þorsteinsson formaður í Nýjabæ, f. í Ísafjarðarkaupstað 2. febrúar 1888, d. 23. október 1970, og kona hans
Jóhanna Jónasdóttir húsfreyja í Nýjabæ, f. 29. október 1898, d. 23. mars 1955.
Börn Jóhönnu og Sigurðar:
1. Steinvör Elísabet, f. 3. júlí 1924, d. 25. febrúar 2013.
2. Kristín Jónasína, f. 2. september 1925, d. 6. maí 2013.
3. Marta Sigríður, f. 22. janúar 1927, d. 8. janúar 2025.
4. Helga Sigríður, f. 10. nóvember 1929.
5. Geirþrúður, f. 30. mars 1935.
Þau Sveinn Áki giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Nýjabæ og við Fífilgötu 5 og í Rvk.
I. Maður Mörtu Sigríðar var Sveinn Áki Þórðarson rafvirki, f. 1. ágúst 1922, d. 16. ágúst 2011.
Börn þeirra:
1. Þórður Ben Sveinsson myndlistarmaður, f. 3. desember 1945 í Nýjabæ. Kona hans Karólína Kristinsdóttir. Þau búa í Þýskalandi.
2. Anna Sveinsdóttir húsfreyja, lyfjatæknir, f. 27. desember 1950 á Sj. Maður hennar Pétur Kristjánsson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Geirþrúður.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.