Ragnar Sveinsson (Stafholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ragnar Sveinsson húsasmíðameistari í Mosfellsbæ fæddist 9. júlí 1955.
Foreldrar hans Sveinn Sverrir Sveinsson múrari, verkamaður, f. 25. október 1924, d. 13. maí 2004, og kona hans Sigríður Ragna Júlíusdóttir húsfreyja, saumakona, kaupkona, f. 28. janúar 1926, d. 25. júní 2008.

Börn Sigríðar Rögnu og Sveins:
1. Júlíus Athur Sveinsson verkamaður, f. 25. júní 1944. Kona hans Freydís Fannbergsdóttir, látin.
2. Sveinborg Sveinsdóttir, f. 4. janúar 1946, d. 7. apríl 1946.
3. Sveinborg Helga Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 13. júní 1948, d. 13. mars 2004. Maður hennar Finnbogi Jónsson, látinn.
4. Ragnar Sveinsson húsasmíðameistari í Mosfellsbæ, f. 9. júlí 1955. Kona hans Gunnhildur M. Sæmundsdóttir.
5. Sveinn Sigurður Sveinsson smiður í Reykjavík, f. 21. apríl 1957. Kona hans Margrét J. Bragadóttir.
6. Birgir Sveinsson húsasmiður í Reykjavík, f. 6. febrúar 1959. Kona hans Steinunn Ingibjörg Gísladóttir.

Þau Gunnhildur giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Mosfellsbæ.

I. Kona Ragnars er Gunnhildur María Sæmundsdóttir frá Sauðárkróki, húsfreyja, leik- og grunnskólakennari, f. 22. maí 1957. Foreldrar hennar Ása Sigríður Helgadóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 18. mars 1930, d. 5. júlí 2015, og maður hennar Sæmundur Árni Hermannsson hótelstjóri, tollvörður, framkvamdastjóri, bóndi, f. 11. maí 1921, d. 12. ágúst 2005.
Börn þeirra:
1. Ófeigur Ragnarsson, f. 4. ágúst 1987.
2. Bergþóra Ragnarsdóttir, f. 8. janúar 1991.
3. Auður Ragnarsdóttir, f. 20. september 1999.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.