Sveinn Sigurður Sveinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sveinn Sigurður Sveinsson smiður í Rvk fæddist 21. apríl 1957.
Foreldrar hans Sveinn Sverrir Sveinsson múrari, verkamaður, f. 25. október 1924, d. 13. maí 2004, og kona hans Sigríður Ragna Júlíusdóttir húsfreyja, saumakona, kaupkona, f. 28. janúar 1926, d. 25. júní 2008.

Börn Sigríðar Rögnu og Sveins:
1. Júlíus Athur Sveinsson verkamaður, f. 25. júní 1944. Kona hans Freydís Fannbergsdóttir, látin.
2. Sveinborg Sveinsdóttir, f. 4. janúar 1946, d. 7. apríl 1946.
3. Sveinborg Helga Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 13. júní 1948, d. 13. mars 2004. Maður hennar Finnbogi Jónsson, látinn.
4. Ragnar Sveinsson húsasmíðameistari í Mosfellsbæ, f. 9. júlí 1955. Kona hans Gunnhildur M. Sæmundsdóttir.
5. Sveinn Sigurður Sveinsson smiður í Reykjavík, f. 21. apríl 1957. Kona hans Margrét J. Bragadóttir.
6. Birgir Sveinsson húsasmiður í Reykjavík, f. 6. febrúar 1959. Kona hans Steinunn Ingibjörg Gísladóttir.

Þau Margrét giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu um skeið í Frakklandi, en eru nú flutt heim.

I. Kona Sveins er Margrét Jóna Bragadóttir húsfreyja, f. 20. janúar 1959. Foreldrar hennar Bragi Einarsson, f. 26. maí 1932, d. 25. september 2011, og Gróa Aradóttir, f. 9. janúar 1935, d. 14. mars 2019.
Börn þeirra:
1. Sveinn Bragi Sveinsson, f. 19. apríl 1957.
2. Íris Gróa Sveinsdóttir, f. 21. apríl 1987.
3. Garibaldi Margrétarson Sveinsson, f. 19. júlí 1993.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.