Benedikt Snorri Sigurbergsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. janúar 2026 kl. 13:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. janúar 2026 kl. 13:49 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Benedikt

Benedikt Snorri Sigurbergsson fæddist 25. nóvember 1930 og lést 17. ágúst 2002.

Kona hans var Hanna Kristín Brynjólfsdóttir. Þau bjuggu á Bergi. Börn þeirra voru:

Börn Hönnu og Benedikts:
1. Fjóla Brynlaug Benediktsdóttir, húsfreyja í Garðabæ, f. 21. júlí 1951 í Eyjum.
2. Freyja Bergþóra Benediktsdóttir, húsfreyja, sjúkraliði á Selfossi, f. 28. júní 1953 í Eyjum.
3. Guðjón Örn Benediktsson, vélstjóri, bifvélavirki, leigubílstjóri í Svíþjóð, f. 10. september 1954 í Stóru-Mörk.
4. Elías Valur Benediktsson, rafsuðumaður, f. 10. janúar 1958 í Eyjum.
5. Birna Sigurbjörg Benediktsdóttir, húsfreyja á Tálknafirði, f. 8. júní 1960 í Eyjum.
6. Sigurbergur Logi Benediktsson, rafeindavirki á Selfossi, f. 24. október 1965 í Eyjum.

Benedikt lauk barnaskóla í Vestmannaeyjum 1943, Iðnskólanum í Vestmanneyjum 1953 og sveinsprófi í vélvirkjun í Vélsmiðju Magna hf. 1954. Hann lauk vélstjóraprófi í Vélskólanum í Reykjavík 1955 og rafmagnsdeild 1956. Hann var næstu árin vélstjóri á ýmsum togurum og bátum, yfirvélstjóri í Hraðfrystistöð Vestmannaeyja um 5 ára skeið, einnig vélstjóri á dýpkunarskipinu Gretti. Hann var 1. vélstjóri á Vigra RE 71 hjá Ögurvík hf. 1975-78 og 1. og 2. vélstjóri á ýmsum skipum Skipadeildar Sambandsins (SÍS) 1979-82. 1. vélstjóri á Ögra RE 72 hjá Ögurvík hf. 1982-91, er hann lauk starfsævi sinni.

Benedikt og Hanna fluttust til Svíþjóðar og bjuggu þar frá 1991-98 en fluttust þá heim aftur og bjuggu í Efstahjalla 17 í Kópavogi.

Myndir



Heimildir

  • Minningargreinar í Morgunblaðinu, 25. ágúst 2002.