Forsíða

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
1973 Allir í bátana á Heimaslóð


.

Einstakt björgunarafrek á heimsvísu var þegar íbúar Vestmannaeyja voru fluttir á brott frá Heimaey 23.janúar 1973 Nú hafa verið skráðar upplýsingar með hvaða hætti íbúar flúðu Eyjuna eða alls, 5.049 manns, 2.630 karlar og 2.369 konur auk 50 ófæddra barna sem voru í móðurkviði þann 23.janúar 1973.

Fólkið fór frá Eyjum með 58 bátum og skipum, flugi eða varð lengur í Eyjum þessa nótt. Að auki komu a.m.k. þrír bátar til Eyja um morguninn til að sækja fólk en fóru farþegalausir til baka. Skráð hefur verið hvar sérhver farþegi var búsettur á þeim tíma og með hvaða báti hann fór og hverjir voru í áhöfn þess báts auk þess hverjir fóru með flugi.

Ingibergur Óskarsson hefur unnið þrekvirki við að safna upplýsingum um flóttann mikla frá Heimaey 23. janúar 1973 og eru upplýsingarnar nú aðgengilegar á 1973 Allir í bátana á Heimaslóð.


Mynd vikunnar

Lundi (Fratercula arctica arctica) er í senn þjóðarfugl Vestmannaeyinga og sameiningartákn Eyjamanna

Grein vikunnar

Þrátt fyrir miður skemmtilegar heimsóknir ræningja, hættulegar glímur við sjóinn og kúgun í gegnum aldirnar, hafa Vestmannaeyingar óttast vatnsskort hvað mest. Ekki eru vatnslindir Vestmannaeyinga stórar eða vatnsmiklar og því hefur þurft að nota aðrar leiðir til að svala þorsta eyjaskeggja.

Lesa meira

Heimaslóð hefur nú 40.139 myndir og 19.921 greinar.

Vinsamlegast sendið allar ábendingar og fyrirspurnir á netfangið heimaslod@vestmannaeyjar.is