Birgir Sveinsson (Stafholti)
Birgir Sveinsson húsasmiður í Rvk og Eyjum fæddist 6. febrúar 1959.
Foreldrar hans Sveinn Sverrir Sveinsson múrari, verkamaður, f. 25. október 1924, d. 13. maí 2004, og kona hans Sigríður Ragna Júlíusdóttir húsfreyja, saumakona, kaupkona, f. 28. janúar 1926, d. 25. júní 2008.
Börn Sigríðar Rögnu og Sveins:
1. Júlíus Athur Sveinsson verkamaður, f. 25. júní 1944. Kona hans Freydís Fannbergsdóttir, látin.
2. Sveinborg Sveinsdóttir, f. 4. janúar 1946, d. 7. apríl 1946.
3. Sveinborg Helga Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 13. júní 1948, d. 13. mars 2004. Maður hennar Finnbogi Jónsson, látinn.
4. Ragnar Sveinsson húsasmíðameistari í Mosfellsbæ, f. 9. júlí 1955. Kona hans Gunnhildur M. Sæmundsdóttir.
5. Sveinn Sigurður Sveinsson smiður í Reykjavík, f. 21. apríl 1957. Kona hans Margrét J. Bragadóttir.
6. Birgir Sveinsson húsasmiður, f. 6. febrúar 1959. Kona hans Steinunn Ingibjörg Gísladóttir.
Þau Steinunn Ingibjörg giftu sig, eignuðust ekki börn saman. Þau skildu.
Birgir býr við Illugagötu 8.
I. Fyrrum kona Birgis er Steinunn Ingibjörg Gísladóttir húsfreyja, tækniteiknari, f. 16. febrúar 1954. Foreldrar hennar Gísli Bryngeirsson úrsmiður, f. 13. maí 1928, d. 10. júní 2014, og Gréta Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 29. júlí 1934, d. 14. nóvember 2015.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Birgir.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.