Ólöf Hauksdóttir
Ólöf Hauksdóttir verkakona fæddist 29. ágúst 1955.
Foreldrar hennar voru Haukur Guðmundsson yfirverkstjóri í Eyjum, f. 25. október 1929, d. 3. september 1991, og kona hans Theódóra Óskarsdóttir húsfreyja, f. 12. október 1933, d. 29. júní 2014.
Börn Theódóru og Hauks:
1. Guðbjörg Ósk Hauksdóttir verkakona, öryrki, f. 11. október 1951 á Eskifirði, bjó síðast á Kirkjubæjarbraut 16, d. 2. júlí 2009.
2. Guðný Stella Hauksdóttir verkakona, söngvaskáld, verkalýðsbaráttukona, f. 17. nóvember 1953 í Keflavík, síðast á Áshamri 38a, d. 17. janúar 2015.
3. Ólöf Hauksdóttir verkakona, f. 29. ágúst 1955 í Keflavík. Maður hennar Ægir Sigurjónsson. Þau búa á Hásteinsvegi 4.
4. Haukur Hauksson sjómaður, f. 8. febrúar 1960 í Keflavík. Fyrrum sambýliskona Anna Ísfold Kolbeinsdóttir. Kona hans er Sigríður Högnadóttir. Þau búa í Helgafelli.
5. Arilíus Smári Hauksson sjómaður, f. 8. september 1971 í Eyjum. Kona hans Ólöf Una Ólafsdóttir. Þau búa á Akranesi.
Ólöf eignaðist barn með Atla 1975.
Þau Ægir giftu sig, hafa ekki eignast börn. Þau búa á Ásbrún við Hásteinsveg 4.
I. Barnsfaðir Ólafar er Atli Sigurðsson skipstjóri, f. 3. ágúst 1952.
Barn þeirra:
1. Sigurður Jóhann Atlason, f. 15. september 1975.
II. Maður Ólafar er Ægir Sigurjónsson smiður, f. 27. apríl 1960.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Ólöf.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.