Arilíus Smári Hauksson
Arilíus Smári Hauksson sjómaður á Akranesi fæddist 8. september 1971.
Foreldrar hans voru Haukur Guðmundsson yfirverkstjóri í Eyjum, f. 25. október 1929, d. 3. september 1991, og kona hans Theódóra Óskarsdóttir húsfreyja, f. 12. október 1933, d. 29. júní 2014.
Börn Theódóru og Hauks:
1. Guðbjörg Ósk Hauksdóttir verkakona, öryrki, f. 11. október 1951 á Eskifirði, bjó síðast á Kirkjubæjarbraut 16, d. 2. júlí 2009.
2. Guðný Stella Hauksdóttir verkakona, söngvaskáld, verkalýðsbaráttukona, f. 17. nóvember 1953 í Keflavík, síðast á Áshamri 38a, d. 17. janúar 2015.
3. Ólöf Hauksdóttir verkakona, f. 29. ágúst 1955 í Keflavík. Maður hennar Ægir Sigurjónsson. Þau búa á Hásteinsvegi 4.
4. Haukur Hauksson sjómaður, f. 8. febrúar 1960 í Keflavík. Fyrrum sambýliskona Anna Ísfold Kolbeinsdóttir. Kona hans er Sigríður Högnadóttir. Þau búa í Helgafelli.
5. Arilíus Smári Hauksson sjómaður, f. 8. september 1971 í Eyjum. Kona hans Ólöf Una Ólafsdóttir.
Þau Ólöf Una giftu sig, bjuggu í Eyjum í 10 ár, búa á Akranesi.
I. Kona Arilíusar Smára er Ólöf Una Ólafsdóttir frá Akranesi, húsfreyja, hársnyrtir, f. 26. mars 1972.
Börn þeirra:
1. Ólafur Haukur Arilíusson, f. 5. apríl 2004 í Eyjum.
2. Theodór Orri Arilíusson, f. 29. mars 2009 í Eyjum.
3. Dóra Valdís Arilíusdóttir, f. 16. nóvember 2010 á Akranesi.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Arilíus.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.