Guðmunda Pálína Guðmundsdóttir

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search
Pálína, Guðríður, Ingibjörg og Guðrún frá Viðey.

Guðmunda Pálína Guðmundsdóttir frá Viðey, húsfreyja í Reykjavík fæddist 8. júlí 1908 í Nýjabæ í Þykkvabæ, Rang. og lést 24. desember 1987.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Einarsson frá Bjólu í Djúpárhreppi, Rang., bóndi, útgerðarmaður í Viðey, f. 18. nóvember 1885 í Rifshalakoti í Ásahreppi, Rang., d. 14. mars 1943 í Eyjum, og kona hans Pálína Jónsdóttir húsfreyja, f. 14. júlí 1880 í Norður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, d. 6. mars 1963 í Reykjavík.

Börn Pálínu og Guðmundar:
1. Guðmunda Pálína Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 8. júlí 1908, d. 24. desember 1987. Maður hennar var Adolph Lauritz Hólm.
2. Jónína Þórunn Guðmundsdóttir, f. 1. desember 1909, d. 19. júní 1910.
3. Karl Óskar Guðmundsson skipstjóri, f. 6. apríl 1911, d. 16. janúar 1986.
4. Jón Óskar Guðmundsson bóndi í Norður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, Rang., síðar smiður í Reykjavík, f. 30. mars 1912, d. 17. mars 2009. Hann var fóstraður hjá Jóni Jónssyni og Þórunni Pálsdóttur móðurforeldrum sínum í Norður-Nýjabæ. Kona hans var Sigurbjörg Gísladóttir.
5. Ármann Óskar Guðmundsson útgerðarmaður, bifreiðastjóri, f. 28. maí 1913, d. 3. júlí 2002.
6. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir húsfreyja, kennari á Flateyri, f. 2. ágúst 1914, d. 26. apríl 2006.
7. Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. desember 1915, d. 29. maí 2011.
8. Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Viðey, f. 19. apríl 1917, d. 14. október 1998.
9. Þórunn Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 26. júlí 1918, d. 2. janúar 2012. Hún var fóstruð hjá Jóni Jónssyni og Þórunni Pálsdóttur móðurforeldrum sínum í Norður-Nýjabæ. Maður hennar var Óskar Pálsson.
10. Geir Óskar Guðmundsson véltæknifræðingur í Reykjavík, f. 18. desember 1920, d. 5. október 1991.
11. Sigurður Óskar Guðmundsson verkamaður í Viðey, f. 25. mars 1922, d. 27. janúar 1980.
12. Kristinn Óskar Guðmundsson lögfræðingur, bæjarstjóri, f. 2. nóvember 1924, d. 26. febrúar 2011.
Börn Guðmundar Einarssonar og Guðbjargar Erlendsdóttur vinnukonu, f. 11. desember 1891, d. 13. janúar 1957:
13. Aðalheiður Guðmundsdóttir verslunarmaður í Reykjavík, f. 25. nóvember 1919, d. 5. ágúst 2008. Hún var ógift.
14. Guðbjörg Svava Guðmundsdóttir húsfreyja á Ísafirði, f. 16. september 1921, d. 22. desember 2007. Maður hennar var Ólafur Markús Guðjónsson stýrimaður.
15. Ólafía Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. september 1921, d. 17. apríl 1992.
Barn Guðmundar Einarssonar og Steinunnar Guðmundsdóttur vinnukonu á Bjólu í Djúpárhreppi:
16. Helgi Guðmundsson bóndi í Borgarholti í Stokkseyrarhreppi, f. 13. september 1902, d. 25. september 1932. Kona hans var Steinvör Jónsdóttir.
Uppeldisbróðir systkinanna, sonur Guðbjargar Erlendsdóttur vinnukonu var
17. Ragnar Hafliðason málarameistari, kaupmaður, f. 12. nóvember 1928 í Viðey, d. 3. desember 2019.

Guðmunda var með foreldrum sínum í æsku, með þeim í Nýjabæ í Þykkvabæ, fluttist með þeim að Ytra-Hóli í V-Landeyjum og til Eyja 1921.
Hún fluttist að Laugarási í Biskupstungum til Óskars Einarssonar læknis föðurbróður síns 1924 og ári síðar með honum til Flateyrar og vann hjúkrunarstörf hjá honum.
Þau Adolph giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau fluttu til Reykjavíkur og skildu.
Eftir skilnað dvaldi Guðmunda Pálína í Eyjum í nokkur ár.
Hún lést 1987.

I. Maður Guðmundu Pálínu var Adolph Lauritz Hólm frá Helgahúsi á Flateyri í Önundarfirði, f. 15. nóvember 1904, d. 28. apríl 1976. Foreldrar hans voru Sophus H. Holm verslunarstjóri á Flateyri, f. 21. maí 1857, d. 1. júlí 1951, og kona hans Sophia Jörgína Holm Nielsen, f. 2. desember 1866, d. 12. apríl 1937.
Börn þeirra:
1. Sófus Henry Hólm sjómaður, iðnverkamaður í Reykjavík, f. 4. mars 1932 á Flateyri, d. 11. maí 2008.
2. Guðmundur Hólm, f. 2. febrúar 1937, d. 15. júní 2015.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.