Hafþór Hannesson (Sóleyjargötu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hafþór Hannesson innkaupastjóri hjá Pennanum í Rvk fæddist 29. júní 1972.
Foreldrar hans Hannes Haraldsson frá Fagurlyst við Urðaveg 16, skipstjóri, f. 4. október 1938, og kona hans Magnea Guðrún Magnúsdóttir, frá Felli við Vestmannabraut 34, húsfreyja, f. 28. desember 1942, d. 29. janúar 2023.

Börn Magneu og Hannesar:
1. Hafdís Hannesdóttir húsfreyja, skrifstofumaður hjá Vinnslustöðinni, f. 16. júlí 1966. Maður hennar er Jóhann Þór Jóhannsson og Guðlaugar Pétursdóttur frá Kirkjubæ.
2. Haraldur Hannesson rafvirki, stýrimaður, útgerðarmaður, eigandi og rekur trilluna Víkurröst ásamt Hannesi föður sínum, f. 2. október 1968. Kona hans er Anna Ólafsdóttir.
3. Hafþór Hannesson innkaupastjóri hjá Pennanum í Reykjavík, f. 29. júní 1972. Kona hans er Þorbjörg Hanna Ögmundsdóttir.

Þau Þorbjörg giftu sig, hafa ekki eignast börn. Þau búa í Kópavogi.

I. Kona Hafþórs er Þorbjörg Hanna Ögmundsdóttir þroskaþjálfi, f. 20. janúar 1982. Foreldrar hennar Ögmundur Hermann Runólfsson og Þórey Þorkelsdóttir húsfreyja, kennari, f. 1. desember 1947, d. 31. desember 2010.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.