Helgi Benediktsson

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search
Helgi

Helgi Benediktsson fæddist 3. desember 1899 og lést 8. apríl 1971. Helgi bjó meðal annars í Einbúa, Grímsstöðum og að Heiðarvegi 20. Kona hans var Guðrún Stefánsdóttir. Börn þeirra eru Stefán, Sigtryggur, Guðmundur Helgason, Páll, Helgi, Guðrún, Arnþór og Gísli.

Helgi var afkastamikill útgerðarmaður, og gerði út fjölda báta, meðal annars Skaftfelling, Skíðblaðni, Helga, Helga Helgason, Mugg, Hilding, Gullþóri, Frosta, Fjalar og Hringver. Hann var einn af stofnendum Vinnslustöðvarinnar og sat í fyrstu stjórn félagsins. Helgi sat í stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja frá 1943–1958. Hann sat í bæjarstjórn fyrir Framsóknarflokkinn og gaf út eigið blað, Framsókn.

Helgi rak einnig byggingar- og útgerðarverslun, lengst af í Vosbúð, ásamt vefnaðarvöruverslun í Bjarma og matvöruverslun. Þá byggði hann Hótel H.B. við Heiðarveg og rak það um árabil, auk þess sem hann átti stórt kúabú í Hábæ. Helgi var einhver mesti athafnamaður í Vestmannaeyjum um miðbik síðustu aldar.

Myndir