Ágúst Karlsson (Ingólfshvoli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ágúst Karlsson, bókari fæddist 7. apríl 1949.
Foreldrar hans voru Karl Kristmannsson kaupmaður, umboðsmaður, f. 21. nóvember 1911 í Steinholti, d. 19. janúar 1958, og kona hans Betsý Gíslína Ágústsdóttir frá Aðalbóli, húsfreyja, f. 28. nóvember 1919, d. 22. apríl 2016.

Börn Betsýjar og Karls:
1. Viktoría Karlsdóttir húsfreyja, f. 6. nóvember 1939, d. 31. október 2020. Maður hennar er Gísli Halldór Jónasson.
2. Kolbrún Stella Karlsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 2. mars 1941. Maður hennar er Birgir Jóhannsson.
3. Kristmann Karlsson kaupsýslumaður, f. 6. júní 1945. Kona hans er Kristín Bergsdóttir.
4. Ágúst Karlsson, f. 7. apríl 1949. Kona hans er Jensína María Guðjónsdóttir.
5. Friðrik Karlsson, f. 26. mars 1953, býr í Danmörku. Kona hans er Inga Dóra Sigurðardóttir.
Barn Karls og fósturbarn Betsýjar var
6. Ingibjörg Sigrún Karlsdóttir, f. 7. nóvember 1934, d. 22. mars 2020. Maður Ingibjargar var Jón Kristjánsson.

Þau Jensína María giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau búa við Áshamar 79.

I. Kona Ágústs er Jensína María Guðjónsdóttir, húsfreyja, sjúkraliði, f. 24. janúar 1949.
Börn þeirra:
1. Kristín Ágústsdóttir, f. 25. mars 1968.
2. Ingi Freyr Ágústsson, f. 25. september 1971.
3. Brynja Hlín Ágústsdóttir, f. 8. júní 1976.
4. Betsý Ágústsdóttir, f. 2. mars 1981.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.